Gjafakortin okkar eru tilvalin tækifærisgjöf fyrir verðandi foreldra og nýja foreldra sem þið viljið gleðja með gjöf sem virkilega getur komið sér vel.

Gjafakortin má kaupa fyrir ákveðna upphæð eða þið getið valið að gefa námskeið til að undirbúa fæðingu eða brjóstagjöf, meðgöngujóga, mömmujóga eða jafnvel námskeiðið Endurheimt sem er námskeið fyrir konur til að byggja sig upp andlega og líkamlega eftir fæðingu.

Gjafakortið er tilvalið fyrir kynjaveislur, babyshower, jólagjafir eða bara til að gleðja stækkandi fjölskyldu með fallegri gjöf sem nýtist vel.

Sendið okkur tölvupóst hér til að panta gjafakort og við útbúum það fyrir ykkur um leið.