Ilmur Björg Einarsdóttir, RN RM MSc

Ilmur Björg Einarsdóttir lauk meistaranámi í ljósmóðurfræði vorið 2021. Hún hefur síðan starfað á Fæðingarvakt Landspítala, Meðgöngu og sængurlegudeild Landspítala, við meðgönguvernd í heilsugæslu og sinnt heimaþjónustu eftir fæðingu. Lokaverkefni Ilmar fjallaði um fæðingarsögur kvenna sem höfðu þegið heildræna og samfellda þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir að barn fæðist.

Í starfi mínu sem sem ljósmóðir hef ég lagt ríka áherslu á fræðslu til kvenna og fjölskyldna. Með fræðslunni er hægt að efla einstaklinga til að taka upplýst val í gegnum barnseignarferlið og stuðla að valdeflingu í þeim verkefnum sem fylgja. Í gegnum starf mitt sem ljósmóðir hef ég verið svo heppin að kynnast konum og fjölskyldum með mismunandi bakgrunn, stefnu og skoðanir og fundið hve mikilvægt það er að mæta einstaklingum þar sem þeir eru og veita þannig sem bestan stuðning í gegnum þetta fallega ferli.