Við byrjum alltaf á smá samverustund, heilsum hver annari og tökum stöðuna, þú færð tækifæri til deila því ef eitthvað sérstakt er að hrjá þig þessa dagana, og við reynum að setja inn í tímann sérstakar æfingar sem eru góðar fyrir viðkomandi kvilla.
- Næst róum við hugan og slökum inn í rýmið, skiljum allt annað eftir fyrir utan jógasalinn 
- Byrjum svo á öndunaræfingu og mjúkri upphitun. 
- Síðan förum við að hreyfa okkur, gerum yogastöður sem eru sérstaklega valdar fyrir líkama þungaðra kvenna, stöður sem auka liðleika, styrk, mýkt og einbeitingu. 
- Við leggjum mikla áherslu á að í gegnum iðkunina horfir þú inn á við, tengist sjálfri þér og barninu þínu. 
- Við endum alltaf tímann á góðri leiddri slökun, ímyndunarhugleiðslu og/eða Yoga Nidra. 
Frekari upplýsingar og skráning fer fram á heimasíðu yogaljos.is
